TAURO PRO LINE Derma Care Coat Growth Recovery er létt hárnæring sem ekki þarf að skola úr og er sérstaklega þróuð til að stuðla að heilbrigðum hárvexti og fallegum feld.
Hárnæringin inniheldur ilmkjarnaolíu úr rafi (amber) sem hjálpar til við endurnýjun húðarinnar ásamt því að veita langvarandi raka og næringu.
Létt formúlan er auðveld í notkun og hjálpar til við að örva hárvöxt og styrkja hársekkina. Hún stuðlar að því að feldur gæludýrsins haldist heilbrigður, mjúkur, sléttur og glansandi.
Þessi hárnæring er skref 3 – Lokameðferð í þriggja þrepa umhirðukerfi. Hún nærir feldinn, viðheldur árangri meðferðarinnar og hjálpar til við að varðveita náttúrulegan raka hans.
Helstu kostir
-
Hjálpar til við að örva heilbrigðan hárvöxt.
-
Stuðlar að sterkari hársekkjum.
-
Getur hjálpað til við að róa ertingu í húð.
-
Viðheldur rakajafnvægi og nærir húð og feld.
-
Getur stuðlað að endurnýjun húðarinnar.
Helstu innihaldsefni
Ilmkjarnaolía úr rafi (Amber Essential Oil) – Gefur raka, nærir og hjálpar til við að örva heilbrigðan feldvöxt.
Glýserín (Glycerin) – Hjálpar til við að viðhalda raka og endurheimta heilbrigði skemmdrar húðar og felds.
Kókosolía (Coconut Oil) – Stuðlar að betra ástandi húðar og felds og veitir næringu.
Koffín (Caffeine) – Getur stutt við heilbrigði húðarinnar, aukið glans feldsins, örvað hárvöxt og styrkt hársekkina.